Draumórar duggandar

Þú verður bara að taka leigubíl...

17.10.2008 23:52:17 / Dúna

Mamma tekur slátur...

... elsku litla sæta fjallalambið mitt
Já sláturgerð á morgun! Ólöf kom með þessa uppástungu í öllu krepputalinu og sveitastelpan sjálf getur ekki verið þekkt fyrir að beila á slíkum gjörningi.... Verðum með eina Húsmæðraskólagengna okkur til halds og traust.. ásamt því sem við þykjumst búa yfir reynslu síðan á æskuárunum.... Þannig að eftir helgina eruði velkomin í soðið slátur, já eða kalda lifrapylsu með mjólkurgrautnum..
Hef lítið annað að segja.. ekki nenni ég að skrifa um ástandið í þjóðfélaginu og það er frekar lítið í gangi hjá mér... Nema hvað ég fór á Villavill tónleika síðustu helgi sem voru peninganna virði!
Minni á bloggið hjá Örnu og Jonna.. Þau eru stödd í Frakklandi, búin að heimsækja 10 lönd.. Á síðunni er ferðasagan og snilldar video..... Þau stytta manni allavega stundirnar í kreppunni og skammdeginu..

Saltkjöt og baunir... túkall
Duggönd sem tekur slátur kveður
Gígja Valgerður skrifaði
ánægð með þig að klikka ekki á slátrinu!;) en smá breyting, misreiknaði mig aðeins (a) kem ekki fyrr en á föstudaginn/kvöldið því að skólinn er á föstdaginn.. een kannski ég geti passað samt fyrir þig =) verðum í bandi, hlakka til að sjá þig fallega mín!;* knús til ykkar grindógjélla!<3 elskykkur & sakna mest af öllu!***
Arna Benný og Jonni skrifaði
Hehe, þessi fyrisögn minnti mig á æsku mína,spilaði spólu með þessu lagi endalaust, haha! jæja, nóg um það, erum afar stolt af þér að hafa skellt þér í sláturgerð, það á eftir að koma sér vel í kreppunni ;p hehe.. æðislegt að lesa commentin frá þér ástin! Og vááá hvað ég er orðin spennt fyrir lobbunni ;* Ef þið systur hittist allar á laugardagsskveldið þá ætla ég að reyna að vera í netsambandi og heimta skype fund,ójá! En hafðu það gott á klakanum, knúsaðu Elvu í klessu frá okkur. Elskum ykkur, kær kveðja frá okkur í steikjandi sól í Portúgal ;p
fannzla skrifaði
hola frænka....vildi bara segja þér að þú átt að koma norður um jólin...alræt...hlakka til að sjá þig þá =op

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan