Draumórar duggandar

Þú verður bara að taka leigubíl...

13.01.2009 21:29:19 / Dúna

Upptekin....

... við að skapa mín eigin örlög..

Duggönd sem hefur glatað bloggaranum í sér kveður..

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 16:08:56 / Dúna

Ég er...

kátasta jólatréð.. hohoho hahaha

Gleðileg jól kæru vinir og vandamenn til sjávar og sveita!

Áramótaheitið þetta skiptið verður að gera e-ð af viti árið 2009.. Nú þýðir ekki lengur að hanga heima og bíða eftir að hamingjan og lukkan banki upp...

Duggönd sem ætlar að skapa sín eigin örlög kveður...


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 15:40:28 / Dúna

Maður upplifir...

sig gamlan þegar...
  • Líkaminn höndlar ekki tveggja daga sull og tekur 2 daga í að jafna sig...
  • Þegar dressþema er EMO og maður þarf útskýringar til að vita hvernig á að klæða sig..
  • Þegar LITLA systir fær bílpróf eftir minna en mánuð....
  • Þegar maður þarf að útskýra fyrir unglingum hver Helgi Björns er...
  • Þegar aðaláhyggjuefnið eru reikningar og þjóðfélagsástandið...
  • Þegar nemendur halda að maður hafi verið í skóla í gamla daga...
  • Þegar silfurgráu hárin spretta eins og arfi í hausnum á manni...

En ávallt skal maður vera ungur í anda og trúa því að maður sé rétt skriðin yfir tvítugt..
Dreymdi gommu af köngulóm í fyrrinótt... Þær boða þvílíka sælu og peninga..
Þannig að nú er bara að bíða eftir að lukkan banki á dyrnar!

Duggönd sem bíður eftir sælunni kveður...


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 23:52:17 / Dúna

Mamma tekur slátur...

... elsku litla sæta fjallalambið mitt
Já sláturgerð á morgun! Ólöf kom með þessa uppástungu í öllu krepputalinu og sveitastelpan sjálf getur ekki verið þekkt fyrir að beila á slíkum gjörningi.... Verðum með eina Húsmæðraskólagengna okkur til halds og traust.. ásamt því sem við þykjumst búa yfir reynslu síðan á æskuárunum.... Þannig að eftir helgina eruði velkomin í soðið slátur, já eða kalda lifrapylsu með mjólkurgrautnum..
Hef lítið annað að segja.. ekki nenni ég að skrifa um ástandið í þjóðfélaginu og það er frekar lítið í gangi hjá mér... Nema hvað ég fór á Villavill tónleika síðustu helgi sem voru peninganna virði!
Minni á bloggið hjá Örnu og Jonna.. Þau eru stödd í Frakklandi, búin að heimsækja 10 lönd.. Á síðunni er ferðasagan og snilldar video..... Þau stytta manni allavega stundirnar í kreppunni og skammdeginu..

Saltkjöt og baunir... túkall
Duggönd sem tekur slátur kveður

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 00:34:03 / Dúna

Herberta..

Pála Gumpsdóttir....

Og það var og..


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 22:32:05 / Dúna

Þessi....

bloggfærsla er stórmerkileg að því leyti að ég skrifa hana heima hjá mér!!
Já stelpan er búin að fjárfesta í tölvu.. Skellti mér á eitt stykki HP og komin í samband við umheiminn eftir langa bið....
Nú er lag að finna nafn á dömuna.. Á Svalbarðseyrinni góðu bjó ég með þeim Greipi, Guðbrandi og Guðráði.. Rallýana stóð í hlaðinu og öll eru þau Gumpsbörn. Í flutningunum skildu leiðir okkar.. Greipur heldur áfram að hlýja mér um nætur og Rallýana ferjar mig milli staða. Guðbrandur er búsettur á Hömrum, en Guðráður má muna fífil sinn fegurri... Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn, tölvuskruddan, er ónefnd og biðla ég til ykkar mín kæru... (treysti sérstaklega á systur mínar í þeim efnum)
Ábyrga og áhyggjufulla stóra systirinn braust út í kvöld þegar ég las fyrstu bloggfærslu Örnu og Jonna sem eru lögð af stað í þriggja mánaða Evrópureisu... Akandi nota bene! Hægt er að fylgjast með ferðasögu þeirra hér..
Kósýkvöld í kvöld.......

Duggönd í nafnaleit kveður...

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 17:53:55 / Dúna

Hvar var....

Dorrit?
Horfði á kappana fá orðurnar sínar og beið eftir að sjá forsetafrúna kyssa þá og knúsa.. Og þá sérstaklega beið ég eftir að heyra hana henda fram enn einni fleygri setningunni! En frúin var hvergi sjáanleg... og hvað var það að troða öllum ráðherrum og borgarstjóra upp á svið við Arnarhól? Áttu þeir mikinn þátt í sigri liðsins.... auðvitað aðalstuðningsmaðurinn á meðal þeirra, flýgur nokkrar ferðir til Kína og lifir hátt!! 
Maður hreinlega spyr sig..
Verð að afsala mér stuðningsmannatitlinum, vegna menningar vaknaði ég ekki til að horfa á úrslitaleikinn........ Klukkan 11 þurfti ég að spyrja hvort við hefðum orðið olympíumeistarar.. og í gær var bioferð á Mamma Mía tekin fram yfir beina útsendingu af heimkomu liðsins.... Mér til málsbóta get ég þó sagt að ég styrkti liðið um 2000 og horfði á orðuveitinguna...
Skírn hjá litlu frænku um helgina.. Það verður því brunað norður um miðdaginn á morgun..
Duggönd sem saknaði Dorritar kveður...

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 18:40:31 / Dúna

Tár...

gleðinnar láku niður kinnar mínar í gærmorgun þegar Strákarnir okkar tryggðu sér sæti í undanúrslitunum..... Síðasta korterið stóð ég í stofunni heima hjá mér, hræddi líftóruna úr dóttur minni með öskrum og grét þegar leikurinn kláraðist.. Í nokkrar sekúndur leið mér eins og ég væri á vellinum að dansa sigurdans.. Þá birtist texti á skjánum sem sýndi símanúmer til að styrkja landsliðið um 1000 krónur.. Í geðshræringunni tók ég upp símtólið og stimplaði inn númerið, hinum megin á línunni heyrðist rödd sem þakkaði mér stuðninginn og endaði símtalið með orðunum: Áfram Ísland!!!! Ég var hluti liðsins.....
Valhoppaði létt í spori í vinnuna, sannfærð um að þetta hefðu allir góðir þjóðfélagsþegnar gert.... En komst fljótlega að því að ég var sú eina sem hafði fallið í gryfju auglýsingasálfræðinnar og tekið upp tólið.... Er sem sagt lýsandi dæmi þess af hverju textabrot sem þetta er sett á skjáinn á slíkum mómentum....
Búin að færa til nokkur foreldraviðtöl á morgun svo ég geti tapað mér, hvort sem það verður *bíb* eða gleði....
Duggönd sem búin er að naga allar neglur niður í kviku kveður...

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 19:40:32 / Dúna

Móða....

Þá er ég orðin háttvirt móðursystir! Sandra og Arnþór eignuðust prinsessu í gær og stóð litla systir sig eins og hetja... Brunaði í bæinn að kíkja áðan og er hún eins og við var að búast alveg yndisleg.. Öskraði reyndar vel á frænku sína til að byrja með en síðan vorum við orðnar bestu vinkonur..
Skrýtið, en ég upplifi mig miklu eldri nú þegar ég er orðin "gamla" frænkan í Grindavík.. Ég ætla að vera frænkan sem á alltaf nammi og ís.. Þannig að það verður geðveikt sport að fara til Dúnu frænku..
Nú er sumarfríið að syngja sitt síðasta.. Fyrsti vinnudagurinn á föstudaginn og litla skottan að byrja á leikskóla....
Á morgun er það SÁLIN uppi á velli!!! Maður er ekki dauður úr öllum æðum, þrátt fyrir háttvirt móðursysturhlutverkið.......

Duggönd móða kveður...

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 18:03:06 / Dúna

Mæra.. mæra..

mæra.. mæra....
Mærudagar á Húsavík eru næsta stoppistöð á djammsumri Duggandarinnar!
Spurning hvaða snilldartakta maður getur sýnt þar...
Gamli gamli (pabbi) verður þátttakandi á hagyrðingakveldi annað kvöld, kannski maður hefji gleðina þar.. Aldrei að vita nema andinn komi yfir og ég finni mitt innra óuppgötvaða skáld..
Veðrið á að vera gott.. Fullt af skemmtilegu fólki til að skrallast og hafa gaman með.. Þetta á ekki að geta klikkað!!!

Sé ykkur á víkinni fögru..

Mæruduggönd kveður..

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 18:58:04 / Dúna

Flakkarinn...

... hvaða mynd er það?
Norðrið var ljúft.. fyrir utan ógeðis veðrið sem var kalt og blautt allan tímann.
Við mæðgur erum eins og hundaskítar við hliðina á kaffibrúnu grindvíkingunum... En unnið er hörðum höndum að því að worka tanið......
Nú er undirrituð orðin 26 ára!!! Í tilefni dagsins fórum við vinkonurnar út að borða og í bío, eða allar nema ein þar sem Magga tók sig til og eignaðist lítinn gutta 7. júlí... Á föstudaginn skottaðist ég aftur í bæinn til að skoða menninguna, en þó aðallega til að kveðja Mario og skrallast.. Þannig að það er búið að vera nóg að gera....
Eftir rúma viku sameinumst við Húsvíkingum í mikilli gleði, því þar verða haldnir Mærudagar..... Norðurlandið fær því að njóta okkar enn einu sinni....

Síðast þegar við hittumst var í heitum potti og þú varst nýorðin Íslandsmeistari í hástökki..

Duggönd sem keppti aldrei í hástökki kveður...

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 00:18:49 / Dúna

Goodbye....

.... my lover.....
....my friend....
Shit hvað maðurinn er æðislegur! Þessir tónleikar fóru fram úr björtustu vonum...... Ohhh
Út að borða á A Hansen fyrir, kertaljós og rómantík....
Já það mætti halda að dúnusinn væri kominn á séns.. en svo er ekki, fór með henni Höllu minni og horfði á ástfangin pör fiffa hvort annað í rólegu lögunum...

Norden í morgen........ Eruði ready? Viktoría, er öl komið í kælinn.....
Here I go again on my own.............

Duggönd að kafna úr rómans kveður..

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 12:55:22 / Dúna

flashback...

.... sit inni í tölvuveri í kennslu.. úti er sól og blíða, miður maí og prófin að bresta á.
Fékk allt í einu þetta svakalega flashback til þess tíma er ég sat sem nemandi í stofunni við hliðina á og beið eftir sumarfríinu.. í fs og HA var maður yfirleitt sloppinn út í sumarvinnuna og gleðina á þessum tíma..
Skil svo innilega hvað börnin eru að ganga í gegnum...
En þetta er allt að hafast..
Duggönd sem farið er að lengja eftir sumarfríinu kveður...

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 15:00:59 / Dúna

Alla leið...

... fékk að heyra það um daginn að ég væri miðaldra sál.. Oft talað um að fólk sé gamlar sálir, en það á ekki greinilega ekki við um mig..
Miðaldra sál, ef við veltum þessu aðeins fyrir okkur er þetta barasta laukrétt..

Ég tala stundum fornt mál (sem ég kenni norlensku uppeldi alfarið um og sveitadvöl)

Ég sit heima á kvöldin og prjóna..

Á meðan ég prjóna horfi ég mjög oft á sjónvarpsstöð allra landsmanna, Rúv..

Uppáhaldssjónvarpsefnið er Útsvar, Laugardagslögin og bind miklar vonir við evróvisionþátt Páls Óskars sem byrjar á laugardaginn..

Þegar ég skála í öli veit ég ekkert betra en að setja Villa Vill eða Rio Trio á spilarann..

Rás 2 hefur vinninginn þegar velja á útvarpsrás og veit ég ekkert skemmtilegra en sunnudagsrúnt á sumrin með Sniglabandinu life...

Ég er með eindæmum ættfróð manneskja.. Stekk oft á fólk sem ég rekst á undir áhrifum of tilkynni þeim skyldleika okkar á meðan það veit ekkert hver ég er..

Annars er ég nokkuð modern.. Eða hvað..
Og annað.. Veit hreinlega ekkert hvað ég á að gera við alla aurana sem ég sé í nánustu framtíð.. Stelpan rýkur upp um tugi þúsunda við nýju kjarasamningana...
Er því ekki tilvalið að fá sér örlítið í litlu tá á morgun og skella sér á dansiball með Ingó og veðurguðunum....
Á Bahamamas......... eyju....

Duggönd á leið í miðaldrakreppuna kveður...

» 11 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 17:46:15 / Dúna

Sumarið á næsta leyti....

eða leiti......
Vorlykt í lofti, býfluguhlussur farnar að sveima, dekkjaskipti og sumardagurinn fyrsti von bráðar.....
Búið að tyrfa fyrir aftan húsið hjá okkur í Lautinni.. nú er bara malbikið eftir og maður sér fram á að losna við sandkassann út úr íbúðinni..
Nóg að gera á öllum vígstöðum og tíminn þýtur áfram...
Superstar á föstudaginn..
Miðvikudagurinn næsti verður tileinkaður Ingibjörgu sem flýgur á vit ævintýranna á föstudaginn...
Finnst ykkur ekki hálf hlægilegt að Ísland sé orðið fullt af mafíósum og glæpastarfsemi útlendinga... Hvernig væri að setja upp aðeins öflugara eftirlit með þeim sem setjast að í landinu okkar..... Maður einfaldlega spyr sig....

Þessi maður... í þessu veðri!
Duggönd í Laut kveður.... 

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan